ABC barnahjálp

Leikskólinn Korpukot styrkir barn til menntunar mánaðarlega í gegnum ABC barnahjálp. En fram kemur á heimasíðu ABC að menntun sé einn mikilvægasti hlekkurinn í að rjúfa vítahring fátæktar. Tilgangur ABC barnahjálpar er að veita börnum varanlega hjálp í formi menntunar.

Það er hún Rachael sem er vinur okkar hér í Korpukoti en hún frá Úganda og er fædd árið 2013. Korpukot hefur styrkt hana síðan árið 2017 og sendir henni árlega jólagjöf. Við höfum fengið frá henni falleg jólakort sem og þakkakort. Þetta samstarf dýpkar skilning okkar á ólíkum menningarheimum og fögnum við árlega þjóðhátíðardegi Úganda auk þess sem ABC hjálparstarf gegnir mikilvægu hlutverki í að uppfylla markmið Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.